Rúnar Örn Rafnsson
Rúnar er vestfirskur Íslendingur búsettur í Reykjavík. Sambýliskona hans, sem jafnframt er besta kona í heimi er Karítas Kristjánsdóttir og að sjálfsögðu er hún vestfirsk líka. Árið 2006 flutti fjölskyldan frá Ísafirði til höfuðborgarinnar og ekki sér fyrir endann á dvöl þeirra þar.
==========
Saman eiga þau besta barn í heimi, Veigar Örn. Þar sem það er náttúrlega alls ekki nóg að eiga bara eitt barn, þá ber Rúnar einnig ábyrgð á þeim bræðrum, Brynjari Erni og Heiðari Erni, en Karítas lagði einn dreng til viðbótar í safnið, Hilmar. Saman er þetta bara alveg einn haugur af bestu drengjum í heimi !
==========
Brynjar Örn (fæddur 1990) býr á Neskaupstað og er hljómsveitatöffari og nemandi í Verkmenntaskóla Austurlands. Hann er líka heilmikill golfari.
==========
Heiðar Örn (fæddur 1994) býr á Staðarbakka sem er rétt hjá Hvammstanga. Hann er mikill íþróttagarpur og æfir körfubolta og fótbolta.
==========
Hilmar (fæddur 1995) býr hjá gamla settinu, og gengur í Hvassaleitisskóla. Hann er mikill brettagarpur og er að læra á gítar.
==========
Veigar Örn (fæddur 2004) er náttúrulega dekurbarnið í fjölskyldunni. Rosalega hress og ákveðinn ungur maður. Bæði pabba og mömmustrákur, svona eftir því hvað hentar betur hverju sinni :-)
==========
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar